16.01.2012 18:44

1.350 Kíló



Ég og Össi fórum á sjóinn á sunnudaginn og byrjuðum að veiða um 10:30.  Það gekk rólega í fyrstu en um kl 11:30 fóru hlutirnir að gerast, það var allt brjálað að gera um borð.  Þvílíkt magn af fiski sem við fengum að á tímum höfðum við ekki undan við að blóðga fiskinn.  En allt hafðist þetta nú og þegar við vorum á leið í höfn um hálf fimm leytið vorum við komnir með 1.350 kíló. þar af um 500 kíló af Ufsa og 850 kíló af Þorski.  Ég persónúlega hef aldrei lent í svona svaka veiði á sjó.  Megnið af fiskunum voru 5 - 10 kíló en nokkrir voru um 15 kíló.  Geggjaður dagur í geggjuðu veðri. 
Hægt er að skoða nokkrar myndir úr túrnum inni á Myndaalbúm.
    Flettingar í dag: 15
    Gestir í dag: 7
    Flettingar í gær: 31
    Gestir í gær: 9
    Samtals flettingar: 44488
    Samtals gestir: 14420
    Tölur uppfærðar: 28.1.2012 12:57:34